Spurning með, til að lenda ekki í því að þurfa mjög mikið spargevatn, að bleyta í korninu í pokanum ofan í fötu fyrst með smá vatni áður en það er sett í meskingu, til að koma í veg fyrir að allt þetta korn dragi mjög mikið af vatni í sig.
Reyni að hafa hann aðeins léttari í prósentu (8,5%, í staðinn fyrir 9,3%).
Meskja hann til að fá fram sætu og meira mouthfeel, en hafa hann samt crisp þrátt fyrir áfengismagnið - 67 ætti að vera fínt?.
Muna að lækka PH í 5.2-5.4 í meskingu.
Boil PH : óþarfi að pæla í því. Lægra ph lengir shelf life en dregur úr hop character. En við viljum hafa hann balanced þarna á milli. Setja bara allar vatnsviðbætur í meskingu.
Mashout 77gráður í 10min
Á ég að bæta dextrose útí? mælt með því almennt í IPA til að fá meiri crispness án þess að auka body. Ef ég nota hann, þá fer hann ofan í eftir mashout.
Hér notum við pilsner malt, og því þarf að sjóða í 90 min!!!!
whirfloc tafla útí þegar 10min eru eftir af suðu.
Kælispírall útí á sama tíma.
Muna að láta renna í gegnum krana í suðu.
Nota smá gernæringu í lok suðu.
Skella 100gr lactose í lok suðu. (miðað við 225gr í milkshake IPA, en hér viljum við bara fá smá sætu og mouthfeel, svo ég áætla mun minna hér).
Nota 2 ger pakka. Mætti alveg vera west coast ger.
Pæla í efficiency - 70 eða 75?
Þessi uppskrift er innan allra marka í DIPA guidelines, fyrir utan lit (of ljós) sem gerir ekkert til.
Gerja í 19 gráðum eins og Pliny the elder.